Sveitarstjórnarkosningar 2026

Við erum Vinstrið
í Hafnarfirði.

Frambjóðendur Vinstriðs í Hafnarfirði

x A fyrir þig
Fyrir Hafnarfjörð
Fyrir allt sem skiptir fólk máli

Sveitarstjórnarkosningar 2026

Við erum Hafnarfjörður

Hafnarfjörður á að vera í fararbroddi í baráttunni fyrir réttlátu, sjálfbæru og lýðræðislegu samfélagi. Tryggjum jafnt aðgengi að góðri þjónustu með raunverulegri þátttöku íbúa.

Þetta skiptir okkur máli

Áherslumál í Hafnarfirði

Veitum þjónandi forystu

Tryggjum samfellda þjónustu með áherslu á velferð, fjölmenningu, forvarnir og andlega heilsu. Við krefjumst þess að leikskólastigið verði lögfest sem fyrsta skólastig með fjármagni frá ríkinu. Nám í íslensku verði innflytjendum að kostnaðarlausu.

Fullt útsvar á fjármagnstekjur

Við viljum að fullt útsvar verði sett á fjármagnstekjur, leiðrétt í gegnum jöfnunarsjóð sveitarfélaga, sem myndi leysa fjárhagsvandamál sveitarfélaganna að mestu leyti.

Börnin okkar allra

Tryggjum öllum börnum og ungmennum, óháð uppruna, efnahag og fötlun, fjölbreytt og aðgengilegt tómstundastarf. Styttum biðlista í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og niðurgreiðum kostnað barna frá tekjulágum heimilum. Ungmennahús og félagsmiðstöðvar eiga að vera opin alla virka daga.

Sjálfbært skipulag og húsnæði

Tryggjum fjölbreytt og hagkvæmt húsnæði og eflum almennan leigumarkað. Húsnæði fólks eru mannréttindi, ekki verslunarvara. Skipulag á að byggja á lífsgæðum, vernd grænna svæða og loftslagsmarkmiðum. Innviðauppbygging og íbúðauppbygging eiga að haldast í hendur.

Alvöru íbúalýðræði

Aukum raunverulega þátttöku íbúa, þar á meðal barna og ungmenna, í stefnumótun og ákvarðanatöku. Komum á hverfaráðum og veitum þeim fjármagn. Tökum samráð við Öldungarráð og Samráðshóp um málefni fatlaðs fólks alvarlega. Stofnum embætti umboðsmanns íbúa og tryggjum gagnsæja og þjónandi stjórnsýslu.

Menning og samvera

Eflum menningu, listir og samverurými og tryggjum aðgengi að félagsheimilum, bókasöfnum og skapandi starfsemi. Menning er bæði samfélagsauður og efnahagsleg auðlind. Sköpum aðstöðu fyrir áhugamannafélög og leikhópa.

Náttúruvernd og loftslagsaðgerðir

Fórnum ekki náttúrunni í nafni uppbyggingar — hún er grunnur að lífsgæðum og framtíðarhagsæld. Hafnarfjörður á að vera í fararbroddi í loftslagsmálum, draga úr losun og vernda land og vistkerfi. Innleiðum hringrásarhagkerfi og eflum grænar samgöngur.

Bætum samgöngur

Hröðum framkvæmdum við Reykjanesbraut og klárum tengingu Álftanesvegar. Lögum ofanbyggðarveg og opnum útgönguleið frá Setbergi. Flýtum uppbyggingu hjólastíga og setjum strætó í sérakreinar. Endurhönnun strætókerfisins á að þjóna öllum hverfum.

Fegrum bæinn

Gerum stórátak í fegrun bæjarins. Fegrum innkomuna og lyftum Vallanna-, Hamars- og Skarðshlíðarhverfum með lystigarði. Reisum gosbrunn í miðbænum með leiksvæði. Innköllum óbyggðar lóðir og stofnum þjóðgarð á Reykjanesi í samvinnu við nágrannasveitarfélögin.

Listinn í Hafnarfirði

  1. 1Ester Bíbí ÁsgeirsdóttirMSc í Stjórnun og stefnumótun, verkefnastjóri
  2. 2Svenny KristinsAðstoðarmaður iðjuþjálfa, lagahöfundur
  3. 3Davíð Arnar StefánssonLandfræðingur, fjallaleiðsögumaður
  4. 4Guðrún Lína ThoroddsenKvikmyndagerðarmaður
  5. 5Margrét PétursdóttirLeiðsögumaður
  6. 6Anna Sigríður SigurðardóttirFramhaldsskólakennari
  7. 7Fjölnir SæmundssonFormaður Landssambands Lögreglumanna
  8. 8Elísabet KristjánsdóttirMannfræðingur og skáld
  9. 9Elsa Sigríður ÞorvaldsdóttirIðjuþjálfi, meistaragráða í heilbrigðisvísindum
  10. 10Inga Björk Margrétar BjarnadóttirDoktorsnemi, fötlunarréttindabaráttukona
  11. 11Helgi Hrafn ÓlafssonKennari, þjálfari
  12. 12Jón Hallur HaraldssonForritari
  13. 13Gestur SvavarssonHugbúnaðarráðgjafi
  14. 14Bára Dís GuðjónsdóttirLeikskólastarfsmaður
  15. 15Björgúlfur Árni Romero ErnusonNemi Kvikmyndaskóla Íslands, dittari
  16. 16Heiðdís TraustadóttirListamaður
  17. 17Sigurður MagnússonLeiðsögumaður
  18. 18Björn Reynir HalldórssonÖryrki
  19. 19Björg Jóna SveinsdóttirRitari
  20. 20Nicolas LiebingHljóðhönnuður
  21. 21Hrefna Sóley JónsdóttirHáskólanemi
  22. 22Árni ÁskelssonTónlistarmaður

Styrkja Vinstrið

Leggðu okkur lið

Framlag þitt skiptir máli.

RKN 0133-26-024061
KT 610426-0260